jæja, þá er þessi helgi að líða.. hún var svakaleg, sérstaklega
laugardagurinn haha
okei sko, ég og tasha vöknuðum kl 8 og fórum
að vinna, vorum tvær með allan subway allan daginn nema það kom
einhver stelpa í smástund en fór svo aftur:/ það var brjááálað að
gera og við bara ekkvað tvær.. kom líka ein kona bara " ég ætla að
fá einn subway með osti og SMJÖRI" ég: "ehh við erum eiginlega ekki
með smjör" hún:"HAA eruði ekki með smjör! hvurslags eiginlega er
þetta! og svo fór hún bara
hahah djíí
allavega hringdi svo ekki haffi bara klukkan hálf 5.. stelpur
þið eruð báðar í byrjunarliði. Þið mætið bara aðeins of seint, jájá
leikurinn BYRJAÐI kl half 6, mæting half 5.. kl 5 vorum við ennþá á
subway, leikur eftir hálftíma, klukkan korter yfir 5 vorum við á
leiðinni uppí fylki, btw ekkert búnar að borða allan daginn, og
vorum að éta subway.. svo við' myndum nú ekki svelta í leiknum!
mætum 5 fyrir, náum að hlaupa 4 ferðir eða svo til að hita upp,
og leikurinn bara byrjar strax:/ sjii.. í hverju skrefi sem ég tók
fann ég subwayinn bara hrisstast í maganum. ég var komin með hann
upp í háls og það munaði ekki litlu að hann kæmi bara út á
vitlausum stað á vitlausum tíma..:/ en ég helt þetta út..
STROGANOFF tók þetta í rassgatið og skoraði 4 af 5 mörkum
leiksins.. leikurinn endaði s.s. 5-1 fyrir okkur að sjálfsögðu..
Hekla skoraði geggjað mark og tasha líka
ég tók bara beckahm á
þetta og skoraði úr aukaspyrnu;D ójáááá..
svo áttum við að keppa við breiðablik áðan, en neeeeeeei
leikurinn áatti að byrja kl 12, klukkan korter yfir var ekki mættur
einn dómari! 20mínútur yfir mættu tveir, vantaði einn. Þeir voru
nývaknaðir og þunnir, og þriðji dómarinn fannst ekki svo að
leikurinn var ekki spilaður! AÐ GETA EKKI REDDAÐ DÓMARA Í
DEILDARBIKAR I MEISTARAFLOKKI ER FARANLEGT! halló hvað er
aððð!!!!
ég var ekki sátt með þetta! gjörsamlega glatað!
við spiluðum þó æfingaleik við Breiðablik, sem gekk því miður
ekki sem skildi,
ég þarf so að byrja að læra fyrir þessi próf! öghh nenni því
ekkki!
overandout
Ruth